===== Greiðslufyrirkomulag 1984 ===== Viðskiptafyrirkomulag 1984 ehf. er staðgreiðslusala/staðgreiðsluviðskipti. Þannig verður reikningur til við greiðslu sem staðfesting á því að viðkomandi hafi keypt eða endurnýjað þjónustu.\\ Reikningur/kvittun er að jafnaði sendur sjálfkrafa á tengslanetfang 1-3 dögum eftir að greiðsla hefur borist 1984 ehf. ---- ==== Breyta eða endurnýja greiðsluleið ==== Til þess að breyta greiðsluleið loggar þú inn á notandann þinn á [[https://www.1984.is/signin|1984.is]]\\ → **Innskrá** \\ → **Stjórnborð**\\ → Smelltu á notendanafnið þitt efst í hægra horninu við hliðina á fánanum\\ → Veldu **Greiðsluaðferðir**\\ → Athugið að haka við **Sjálfkrafa endurnýjun** sé þess óskað.\\