===== Tölvupóstur ===== ==== Ýmis póstforrit ==== Uppsetning á póstþjónustu 1984 í ýmsum póstforritum\\ * [[thunderbird-ice|Thunderbird]] * [[outlook2007|Microsoft Outlook 2007]] * [[outlook2013|Microsoft Outlook 2013]] * [[outlook2021|Microsoft Outlook 2021/365]] * [[outlook2021_mac|Microsoft Outlook 2021/365 for Mac]] * [[macmail|Mail - MacOSX]] * [[macmailsmtp|Mail - MacOSX - Útsending/SMTP]] * [[iphone|Póstuppsetning fyrir iPhone]] * [[android|Póstuppsetning á Android]] * [[OutlookCalendar|Uppsetning á Microsoft calendar]] * [[GoogleCalendar|Uppsetning á Google calendar]] ==== Búa til ný netföng: ==== → Farðu á [[https://1984.is|1984.is]]\\ → Veldu **Stjórnborð**\\ → Smelltu á **stjórnborð hýsingar**\\ → Smelltu á **Póstur**\\ → Smelltu á **Add new email**\\ → Fylltu í **Tölvupóstfang** það sem á að vera fyrir framan @\\ → Fylltu út í **lykilorð** ef mælistikan verður græn ertu með gott lykilorð\\ → Smelltu á **ADD new email**\\ → Farðu síðan á [[https://vefpostur.1984.is|vefpostur.1984.is]] til að sjá hvort allt virki\\ → **Username** er netfangið sem þú bjóst til\\ → **Password** lykilorðið góða\\ Ef allt er í lagi þá getur þú sett upp netfangið þitt í póstforriti eins og t.d. [[https://www.mozilla.org/is/thunderbird|Thunderbird]].\\ ---- ==== Póstþjónar 1984 ==== **Incoming mail server**: (**IMAP**)\\ → er alltaf mail.1984.is\\ → **Gátt/Port**: 143 (ekki örugg tenging) eða 993 (SSL).\\ **Outgoing mail server**: → **Gátt/port** fyrir sendingu er 465 (TLS eða STARTTLS), eða 475 (SSL), eða 587 (TLS eða STARTTLS).\\ **POP stillingar**: Við mælum með því að nota, IMAP, en ef þú af einhverjum ástæðum þarft að nota POP þá er:\\ → **Incoming pop mail server**: mail.1984.is og gátt/port 110 eða 995.\\ → **Outgoing mail server**: mail.1984.is og gátt/port 587 eða 475 (SSL).\\ **Ath. að það þarf alltaf að auðkenna sig bæði til að sækja og senda póst**. ---- ==== Senda fjölpóst ==== Það er töluverður vandi að senda fjölpóst þannig að vel sé, stöðluð póstþjónusta er ekki til þess gerð að senda fjölpóst. Ef þú sendir fjöldapóst með sömu aðferðum og venjulegan póst þá mun aðeins lítill hluti viðtakenda raunverulega fá póstinn því móttökupóstþjónar munu greina hann sem ruslpóst.\\ Ef þú vilt vera sæmilega viss um að fjölpóstur berist frá þér er lang besta aðferðin að nota til þess gerða þjónustu, t.d. [[http://mailchimp.com/|MailChimp]]:\\ **MailChimp** getur þú notað frítt upp að 12,000 póstum á mánuði til 2000 viðtakenda. Þetta er mjög örugg og áhyggjulaus leið til þess að senda fjöldapóst.\\ Annar möguleiki er t.d. [[http://sendgrid.com/|SendGrid]]:\\ **SendGrid** er frítt upp að 12,000 póstum á mánuði, þar þarf ekki að skrá greiðslukort.\\ Ef farið er í að senda á 40.000 netföng á mánuði þá kostar það 10$ borið saman við 75$ hjá mailchimp.\\ Viljir þú endilega gera þetta sjálfur þá er ekkert vit í því að hafa fleiri en svona 6-8 viðtakendur í hverri sendingu. Við hvetjum þig þó til að skoða sérhæfða þjónustu til að senda fjölpóst, sérstaklega ef þetta er eitthvað sem þú þarft að reiða þig á í atvinnuskyni. ---- ==== Sjálvirkt svar frá netfangi ==== → Farðu á **[[https://www.1984.is/signin|1984.is]]**, smelltu á **Innskrá** og veldu **Stjórnborð**.\\ → Smelltu á **Fara á stjórnborð hýsingar**.\\ → Smelltu á **Mail** efst uppi.\\ → Finndu netfangið sem þú vilt virkja sjálvirkt svar fyrir.\\ → Smelltu á **Enable** þar sem stendur **Auto responder**.\\ → Skrifaðu skilaboðin þín í stóra gluggann og smelltu á **Activate**.\\ → Þar sem áður stóð **Enable** stendur nú **Disable** sem þú smellir á til að af-virkja sjálfvirkt svar, eða **Edit** til þess að breyta skilaboðunum. ---- á ég að geta breytt þessu :o