===== WordPress vefkerfi (CMS) ===== **WordPress** er ókeypis og opið (**Open-Source**) **CMS**-kerfi byggt á **PHP** og **MySQL**, sem hægt er að setja upp á vefþjónum **1984**.\\ **WordPress** inniheldur kerfi sem býður upp á mikið úrval viðbóta (plugins) og sniðmáta (templates).\\ **WordPress** var notað af yfir 26,4% af vinsælustu 10 milljón vefsíðum heims í apríl 2016. Það er álitið vera eitt einfaldasta og vinsælasta blogg-kerfið í notkun á vefnum og er keyrt á yfir 60 milljónum vefsvæða.\\ **WordPress** er gefið út samkvæmt **GPLv2** (eða síðari útgáfu, **General Public License**) leyfi frá the **Free Software Foundation**. [[https://www.wordpress.org/|wordpress.org]] ---- ==== Að hafa í huga varðandi WordPress vefi ==== * Ekki nota „admin“ sem notendanafn, það er of augljóst fyrir hakkara, eitthvað sem erfitt er fyrir hakkara að giska á væri mun öruggara.\\ * Ekki vanmeta mikilvægi þess að nota öflug lykilorð!\\ * Uppfæra ALLTAF öll theme og plugins hvort sem þau eru í notkun eða ekki.\\ * Eyða helst öllum themes og plugins sem ekki eru í notkun.\\ * Uppfærslur eru tíðar og full ástæða til að fylgjast með þeim amk. einu sinni í viku.\\ * Við innsetningu á nýjum viðbótum eða þemu, setjið þá inn eitt í einu og gaumgæfið síðan hvort WordPress kerfið virki eðlilega áður en annað er sett inn.\\ * Athugið að viðbætur og þemu eru oftar en ekki ástæða þess að WordPress kerfi bilar. ----