Viðskiptafyrirkomulag 1984 ehf. er staðgreiðslusala/staðgreiðsluviðskipti. Þannig verður reikningur til við greiðslu sem staðfesting á því að viðkomandi hafi keypt eða endurnýjað þjónustu.
Reikningur/kvittun er að jafnaði sendur sjálfkrafa á tengslanetfang 1-3 dögum eftir að greiðsla hefur borist 1984 ehf.
Til þess að breyta greiðsluleið loggar þú inn á notandann þinn á 1984.is
→ Innskrá
→ Stjórnborð
→ Smelltu á notendanafnið þitt efst í hægra horninu við hliðina á fánanum
→ Veldu Greiðsluaðferðir
→ Athugið að haka við Sjálfkrafa endurnýjun sé þess óskað.