Site Tools


stjornbord

This is an old revision of the document!


Aðgangur og Stjórnborð

Deild þjónustustýring

Ef þú þarft að veita t.d. vefara aðgang að vehýsingunni þinni þá er deild þjónustustýring tilvalin til þess. Er viðkomandi með skráðan notanda hjá 1984.is? Ef ekki þá er einfalt að stofna notanda með því að fara á 1984.is smella á Búa til notanda.
Svona er deild þjónustustýring búin til á 1984.is:
→ Smelltu á Innskrá og veldu Stjórnborð.
→ þú ert núna í Umsjón, undir flipanum Yfirlit.
→ Smelltu á tannhjólin hægra megin við hnappinn Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Skrifaðu notendanafn viðkomandi (oftast netfang).
→ Smelltu á Leyfa notanda að stjórna.
Með þessum möguleika getur þú veitt öðrum notanda leyfi til að stjórna þjónustunni að fullu, en ekki notendaupplýsingum þínum.
Notandinn fær skilaboð og getur þá séð slóð á stjórnborðið þitt hjá sér.
Þú getur afturkallað þetta leyfi hvenær sem þig lystir.


Gleymt lykilorð að stjórnborði

→ Til þess að búa til nýtt lykilorð ferð þú á 1984.is.
→ Smelltu á Innskrá og veldu Stjórnborð.
→ Smelltu á Smelltu hér til að setja nýtt.
→ Fylltu í tengslanetfangið þitt.
→ Þú færð skilaboð send á tengslanetfangið.
→ Fylgdu leiðbeiningunum til að búa til nýtt lykilorð.


Taka afrit af gagnagrunni

Ath. að afrit af gagnagrunni er tekið á 24.klst. fresti, það afrit er vistað í möppunni backups á vefsvæðinu, og er hægt að sækja með FTP forriti (sjá uppl. um FTP FTP og SFTP hér ). Viljir þú taka nýtt afrit af gagnagrunnifylgir þú þessum leiðbeiningum:

→ Farðu á 1984.is, smelltu á Innskrá og veldu Stjórnborð.
→ Smelltu á Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Smelltu á Databases efst uppi.
→ Smelltu á phpMyAdmin.
→ Smelltu á nafn gagnagrunns í dálkinum vinstra megin.
→ Smelltu á flipan Export.
Export Method: Quick.
Format: SQL.
→ Smelltu á hnappinn Go og vistaðu afritið á disknum hjá þér.


Taka afrit af vef

→ Farðu á 1984.is, smelltu á Innskrá og veldu Stjórnborð.
→ Smelltu á Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Smelltu á Webtools efst uppi.
→ Smelltu á Filamanager.
→ Loggaðu inn með ftp aðgangsupplýsingum þínum.
→ Veldu htdocs ef vefurinn þinn er þar.
→ Smelltu á All til að velja allar möppur og skrár.
→ Smelltu á Download og veldu hvar þú vilt vista þjappaða skrá sem inniheldur vefinn þinn.


Tölfræði

Tölfræði síðunnar þinnar
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Veldu Webtools. efst uppi.
→ Smelltu á íkon til vinstri við Access your domain statistics through the Web interface.
→ Loggaðu inn með awstats aðgangsupplýsingum þínum.


URL Forwarding

Eða vísa léni á hýsingu með annað lén
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Smelltu á Domains efst uppi.
→ Smelltu síðan á Add domain alias.
→ Þar sem stendur Domain alias name á lénið að vera.
→ Smella á Yes þar sem stendur URL forwarding.
Forward to URL þar fyllir þú í hvert á að forwarda.
→ Smelltu síðan á Add.


stjornbord.1478104706.txt.gz · Last modified: 2016/11/02 16:38 by helgi