Table of Contents
Viskubrunnur 1984
Hér er að finna leiðbeiningar fyrir helstu þjónustþætti sem 1984 býður upp á.
Í dálkinum til vinstri eru ítarlegri leiðbeiningar um ýmsa þætti kerfa 1984 o.fl.
Ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að sendu þá póst á 1984@1984.is.
Tölvupóstleiðbeiningar
Nokkrar algengar spurningar (FAQ)
++++ ★ Hvað er greitt fyrir langt tímabil í einu?|
Þú getur valið að greiða fyrir eitt, tvö eða þrjú ár í einu, ef viðskiptavinur óskar eftir að segja upp hýsingu áður en tímabilinu líkur getur viðkomandi óskað eftir því að fá endurgreitt fyrir þá mánuði sem eftir eru.
Nánari upplýsingar er að finna á:
→ 1984.is
→ „Vörur & Verð”++++
++++ ★ Hvernig er greitt fyrir þjónustuna?|
Allar greiðslur eiga sér stað inni í stjórnborði notandans, hægt er að velja að greiða með kreditkorti eða senda kröfu í heimabanka. Einnig er hægt að greiða með bitcoin eða monero rafmynt++++
++++ ★ Hvar get ég séð hvað er búið að greiða?|
Þú loggar inn með notandanafninu þínu inn á Stjórnborð 1984, þegar þangað er komið smellir þú á notendanafnið þitt efst í hægra horninu við hliðina á fánanum og smellir þar á „Reikningar“.++++
++++ ★ Hvað er mikið diskpláss innifalið?|
1984.is býður upp á ótakmarkað diskpláss fyrir gögn tengd vefsíðu, gagnagrunni og póstþjónustu.Sjá nánar Þjónustuskilmála 1984 ehf.:
→ 1984.is
→ „1984”
→ „Þjónustuskilmálar”++++
++++ ★ Get ég flutt núverandi vefsíðu og póst yfir til 1984?|
Ef núverandi hýsingaraðili leyfir slíkt þá er í flestum tilvikum hægt að flytja heimasíðu og tölvupóst án þess að eiga á hættu að gögn tapist.
Vefsíður sem ekki er hægt að flytja eru t.d. vefsíður gerðar í séreignar- vefumsjónarkerfi sem eingöngu er hægt að nota hjá fyrirtækinu sem bjó það til.++++
++++ ★ Sjáið þið um að flytja síðuna yfir til 1984.is?|
Starfsfólk 1984 getur flutt síðu og póst yfir til 1984 gegn hógværu gjaldi. Hafðu samband með því að senda skilaboð á 1984@1984.is++++
++++ ★ Hvernig breyti ég lykilorði fyrir tölvupóst?|
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á „Fara á stjórnborð hýsingar”.
→ Smelltu á „@Póstur” efst uppi.
→ Smelltu á „Breyta lykilorði” til hægri við netfangið sem á að breyta.
→ Skrifaðu inn lykilorð tvisvar og smelltu á „Staðfestu lykilorð“.
Ath. að þegar breytt er lykilorði netfangs sem er í áframsendingu, þá þarf að taka áframsendinguna af, breyta síðan lykilorðinu og setja síðan áframsendinguna á aftur.++++
++++ ★ Hvernig sæki ég afrit af gagnagrunni?|
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á „Stjórnborð hýsingar”.
→ Smelltu á SQL” efst uppi.
→ Finndu gagnagrunninn og smelltu á „phpMyAdmin” í sömu línu.
→ Í phpMyAdmin smellir þú á „Export”
→ Síðan smellir þú á „Go” hnappinn neðarlega til vinstri og vistar skrána hjá þér.++++
++++ ★ Hvernig set ég upp aukalén og undirlén?|
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á „Stjórnborð hýsingar”.
→ Þar sérðu takka sem stendur á „Bæta við svæði”
→ Þú Smellir á hann setur inn lénið sem þú villt bæta við.
→ Þú smellir svo á ++++
++++ ★ Póstur frá vefsíðu ekki að virka?|
Varðandi að senda póst frá mail formi á vefsíðu, ert þú að nota smtp þjóna 1984?
Við mælum eindregið gegn því að nota php mail(), það er á allan hátt öruggara að nota smtp þjón 1984 til þess að senda póst úr vefkerfum til að koma í veg fyrir að lénið lendi í að verða blokkerað vegna spam-sendinga.
Fyrir WordPress eru til plugin til eins og t.d. „WP Mail SMTP” til að stilla smtp sendingar.++++
++++ ★ Fylgir MySQL gagnagrunnur með hýsingunni?|
Já, ótakmarkaður fjöldi MySQL gagnagrunna fylgir með hýsingunni.++++
++++ ★ Hvernig breyti ég nafnaþjónum fyrir lén keypt hjá 1984?|
Eingöngu starfsfólk 1984 getur breytt nafnaþjónum „.is” léna.
Hægt er að breyta nafnaþjónum annarra léna sem keypt eru hjá 1984 í „FreeDNS” stillingum í Stjórnborði hýsingar:
→ Smelltu á FreeDNS.
→ Smelltu á Nafnaþjónar til hægri við lénið sem þú vilt vinna með.
→ Fylltu í það sem þú þarft og smelltu á Vista breytingar.++++
++++ ★ Hvernig kaupi ég nýtt lén?|
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á „Vörur”
→ Veldu „Skrá lén”++++
++++ ★ Get ég skoðað tölvupóstinn á netinu?|
Þú getur notað tölvupóstinn á 1984.is
→ Smelltu á „Innskrá”.
→ Veldu „Vefpóstur”.++++
++++ ★ Get ég verið með sölusíðu hjá 1984?|
Hægt er að setja upp flest þau sölukerfi sem geta unnið á Linux/Apache vefþjónum.++++
++++ ★ Ég vil ekki endurnýja hýsingu eða/og lén hvað geri ég?|
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Þar sérð þú lista yfir þjónustur þínar hjá 1984 ehf.
→ Undir liðnum „Sjálfkrafa endurnýjun” afhakar þú þá þjónustu sem þú vilt ekki endurnýja.
→ Viljir þú hætta öllum þjónustum ættir þú líka að eyða valdri greiðsluaðferð:
→ Smelltu á „Greiðsluaðferðir”
→ Smelltu á rauða hnappinn „Eyða” til að eyða greiðsluleið.++++
++++ ★ Hvernig eyði ég út hýsingu/léni?|
Þú getur eytt hýsingum aukaléna í Stjórnborði hýsingarinnar, sem og netföngum (og þar með pósti).
Aðal hýsingu er eytt um það bil þremur mánuðum eftir að hætt er að greiða fyrir þjónustuna. Ef þú vilt loka og eyða hýsingu fyrr er hægt að senda beiðni þess efnis á 1984@1984.is frá tengslanetfangi hýsingarinnar.++++
++++ ★ Hvað er tengslanetfang?|
Þegar notandi er stofnaður skráir hann tölvupóstfang sem verður ígildi tengslanetfangs fyrir notandann og þá þjónustu sem skráð er á viðkomandi.
Allar beiðnir um breytingu á þjónustu verða að berast frá réttu tengslanetfangi.
Þetta er eina leiðin fyrir 1984 til að tryggja að við eigum samskipti við réttmætann eiganda
Athugaðu að í Stjórnborði 1984 getur þú bætt við tengslanetfangi.
Allar tilkynningar sem koma frá 1984 munu berast á skráð tengslanetfang eins og t.d. tilkynningar um endurnýjanir og fleira.++++
++++ ★ Hvernig bý ég til tölvupóst/netföng?|
→ Farðu á 1984.is.
→ Smelltu á „Innskrá”.
→ Veldu „Stjórnborð”.
→ Smelltu á „Fara á stjórnborð hýsingar”.
→ Smelltu á „Mail”.
→ Smelltu á „Add email account”.
→ Fylltu í „Username” það sem á að vera fyrir framan „@”.
→ „Domain name veldu lén ef þú ert með fleiri en eitt.
→ „Password” ef mælistikan verður græn ertu með gott lykilorð.
→ Smelltu á „ADD”.
→ Farðu síðan á vefpostur.1984.is til að sjá hvort allt virki.
→ „Username” er netfangið sem þú bjóst til.
→ „Password” lykilorðið góða.
Ef allt er í lagi þá getur þú sett upp netfangið þitt í póstforriti eins og t.d. Thunderbird.++++
++++ ★ Hvernig bý ég til sjálfvirkt svar (auto-reply) á tölvupóst|
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á „Fara á stjórnborð hýsingar”.
→ Smelltu á „Mail” efst uppi.
→ Smelltu á „Enable” undir því netfangi sem við á.
→ Skrifaðu skilaboðin þín í gluggann og smelltu á „Activate”.
→ Til þess að af-virkja skilaboðin smellir þú á „Deactivate”.++++
++++ ★ Hvernig stilli ég áframsendingu á tölvupósti?|
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á „Fara á stjórnborð hýsingar”.
→ Smelltu á „Mail” efst uppi.
→ Smelltu á „Edit” til hægri við netfangið sem á að breyta.
→ Smelltu á „Forward”.
→ Skrifaðu inn netfangið (, eða línubil ef fleiri en eitt) í „Forward to”.
→ Smelltu á „Update”.++++