Site Tools


android

Póstuppsetning fyrir Android

Eftirfarandi gildir um alla póstþjónustu 1984:

Incoming mail server er alltaf mail.1984.is og deilir út pósti á porti 143(IMAP) , 993(IMAPS) eða 110(POP), 995(POPS). mail.1984.is er líka hægt að nota fyrir Outgoing mail server, þá þarf að auðkenna sig gagnvart honum og breyta port stillingum, þannig að póstforritið sendi á porti 465 eða 587, hægt er að nota port 25, en það er sjaldnast opið fyrir umferð um það hjá Internetveitum vegna spamhættu.

Notendanafn eða User Name er alltaf fullt netfang, hvort sem það er fyrir Incoming eða Outgoing þjón.

Hér að neðan eru leiðbeiningar fyrir Android.

Athugið að texti fylgir þeirri mynd sem hann birtist undir.

#1 - Skrifaðu inn netfangið þitt og lykilorð, veldu þvínæst Next.

#2 - Hér skaltu velja IMAP.

#3 - Bæði Username og Email er það sama. Á þessum tímum er öruggast að nota alltaf dulkóðuð samskipti við þjón (SSL) og á þetta sérstaklega við um síma sem tengjast fyrsta þráðlausa neti sem þeir finna án þess að bíða eftir samþykki eigandans.

#4 - Hér skal líka valið að nota dulkóðuð samskipti. Þarna hefur þú val um TLS á porti 465 eða SSL á porti 475.

#5 - Þessir valmöguleikar eru smekksatriði hvers og eins.

#6 - Hér hefur þú lokið uppsetningu og allt eins og blómstrið eina.

android.txt · Last modified: 2016/03/11 10:31 by helgi