User Tools

Site Tools


outlook2013

This is an old revision of the document!


Microsoft Outlook 2013

Eftirfarandi gildir um alla póstþjónustu 1984:

Incoming mail server er alltaf mail.1984.is og deilir út pósti á porti 143(IMAP) eða 110(POP). mail.1984.is er líka hægt að nota fyrir Outgoing mail server, þá þarf að auðkenna sig gagnvart honum og breyta port stillingum, þannig að póstforritið sendi á porti 465 eða 587, hægt er að nota port 25, en það er sjaldnast opið fyrir umferð um það hjá Internetveitum vegna spamhættu.

Notendanafn eða User Name er alltaf fullt netfang, hvort sem það er fyrir Incoming eða Outgoing þjón.

Athugið að texti sem birtist undir mynd, fylgir henni.


#1 Þú ferð leið sem liggur í File og smellir á Account Settings og velur fyrir neðan aftur Account Settings (don't ask us why?).


#2 Í framhaldi smellir þú léttilega á New.


#3 Hakar við Manual Setup og smellir á Next.


#4 Hakar við POP eða IMAP (mælum frekar með IMAP og smellir í framhaldi á Next.


#5 Hér færir þú inn viðeigandi upplýsingar eins og þær birtast á myndinni að ofan. Incoming er mail.1984.is. Outgoing er mail.1984.is og við mælum með að notendur noti IMAP stillinguna fyrir Account type. Það er mikilvægt að hafa í huga að notendanafnið þitt (User Name) er allt netfangið þitt. Í framhaldi af þessu smellir þú á More Settings.


#6 Ferð í flipann Outgoing Server og hakar við My outgoing server (SMTP) Requires authentication eins og sést á myndinni.


#7 Að því loknu færir þú þig í Advanced flipann og tryggir að outgoing port sé 465 eða 587.

Að þessu loknu smellir þú á Ok og gerir Finished. Ef allt er í lagi ætti Outlook að gera “test” á netfanginu og ef allt er í lagi kemst þú út úr valmyndinni og póstur ætti að streyma inn.

outlook2013.1411035548.txt.gz · Last modified: 2014/09/18 10:19 by birgir