This is an old revision of the document!
Table of Contents
Aðgangur og Stjórnborð
Deild þjónustustýring
Ef þú þarft að veita t.d. vefara aðgang að vehýsingunni þinni þá er deild þjónustustýring tilvalin til þess. Er viðkomandi með skráðan notanda hjá 1984.is? Ef ekki þá er einfalt að stofna notanda með því að fara á 1984.is smella á Stofna aðgang.
Svona er deild þjónustustýring búin til á 1984.is:
→ Smelltu á Stjórnborð.
→ þú ert núna í Umsjón, undir flipanum Yfirlit.
→ Smelltu á tannhjólin hægra megin við hnappinn stjórnborð hýsingar.
→ Skrifaðu notendanafn viðkomandi (oftast netfang).
→ Smelltu á Leyfa notanda að stjórna.
Með þessum möguleika getur þú veitt öðrum notanda leyfi til að stjórna þjónustunni að fullu, en ekki notendaupplýsingum þínum.
Notandinn fær skilaboð og getur þá séð slóð á stjórnborðið þitt hjá sér.
Þú getur afturkallað þetta leyfi hvenær sem þig lystir.
Gleymt lykilorð að stjórnborði
→ Til þess að búa til nýtt lykilorð ferð þú á 1984.is.
→ Smelltu á Stjórnborð.
→ Smelltu á Gleymdirðu lykilorðinu?.
→ Fylltu í tengslanetfangið þitt.
→ Smelltu á Endurstilla lykilorð
→ Þú færð skilaboð send á tengslanetfangið.
→ Fylgdu leiðbeiningunum til að búa til nýtt lykilorð.
Að fá afrit af gagnagrunni
Ath. að afrit af gagnagrunni er tekið á 24.klst. fresti, það afrit er vistað í möppunni backups á vefsvæðinu, og er hægt að sækja með FTP forriti (sjá uppl. um FTP og SFTP hér ). Viljir þú taka nýtt afrit af gagnagrunni fylgir þú þessum leiðbeiningum:
→ Farðu á 1984.is og veldu Stjórnborð.
→ Skráðu þig inn.
→ Smelltu á stjórnborð hýsingar.
→ Smelltu á Veftól uppi.
→ Smelltu á Gagnagrunnsumsýsla.
→ Smelltu á nafn gagnagrunns í dálkinum vinstra megin.
→ Smelltu á flipan Export.
→ Export Method: Quick.
→ Format: SQL.
→ Smelltu á hnappinn Go og vistaðu afritið á disknum hjá þér.
Taka afrit af vef
→ Farðu á 1984.is, smelltu á Innskrá og veldu Stjórnborð.
→ Smelltu á Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Smelltu á Webtools efst uppi.
→ Smelltu á Filamanager.
→ Loggaðu inn með ftp aðgangsupplýsingum þínum.
→ Veldu htdocs ef vefurinn þinn er þar.
→ Smelltu á All til að velja allar möppur og skrár.
→ Smelltu á Download og veldu hvar þú vilt vista þjappaða skrá sem inniheldur vefinn þinn.
Tölfræði
Tölfræði síðunnar þinnar
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Veldu Webtools. efst uppi.
→ Smelltu á íkon til vinstri við Access your domain statistics through the Web interface.
→ Loggaðu inn með awstats aðgangsupplýsingum þínum.
URL Forwarding
Eða vísa léni á hýsingu með annað lén
→ Þú loggar þig inn á Stjórnborð 1984 með notendaupplýsingum hýsingarinnar.
→ Smelltu á Stjórnborð hýsingar.
→ Smelltu á Lén efst uppi.
→ Smelltu síðan á Möguleikar fyrir það lén.
→ Smelltu síðan á Áframsending.
→ Styltu Áframsending tegund á 301 moved permenantly .
→ Skráðu lénið sem þú villt áframsenda á í textaboxið undir Áframsenda á slóð .
→ Smella á Uppfæra .