Table of Contents
Tölvupóstur
Ýmis póstforrit
Uppsetning á póstþjónustu 1984 í ýmsum póstforritum
Búa til ný netföng:
→ Farðu á 1984.is
→ Veldu Stjórnborð
→ Smelltu á stjórnborð hýsingar
→ Smelltu á Póstur
→ Smelltu á Add new email
→ Fylltu í Tölvupóstfang það sem á að vera fyrir framan @
→ Fylltu út í lykilorð ef mælistikan verður græn ertu með gott lykilorð
→ Smelltu á ADD new email
→ Farðu síðan á vefpostur.1984.is til að sjá hvort allt virki
→ Username er netfangið sem þú bjóst til
→ Password lykilorðið góða
Ef allt er í lagi þá getur þú sett upp netfangið þitt í póstforriti eins og t.d. Thunderbird.
Póstþjónar 1984
Incoming mail server: (IMAP)
→ er alltaf mail.1984.is
→ Gátt/Port: 143 (ekki örugg tenging) eða 993 (SSL).
Outgoing mail server:
→ Gátt/port fyrir sendingu er 465 (TLS eða STARTTLS), eða 475 (SSL), eða 587 (TLS eða STARTTLS).
POP stillingar: Við mælum með því að nota, IMAP, en ef þú af einhverjum ástæðum þarft að nota POP þá er:
→ Incoming pop mail server: mail.1984.is og gátt/port 110 eða 995.
→ Outgoing mail server: mail.1984.is og gátt/port 587 eða 475 (SSL).
Ath. að það þarf alltaf að auðkenna sig bæði til að sækja og senda póst.
Senda fjölpóst
Það er töluverður vandi að senda fjölpóst þannig að vel sé, stöðluð póstþjónusta er ekki til þess gerð að senda fjölpóst. Ef þú sendir fjöldapóst með sömu aðferðum og venjulegan póst þá mun aðeins lítill hluti viðtakenda raunverulega fá póstinn því móttökupóstþjónar munu greina hann sem ruslpóst.
Ef þú vilt vera sæmilega viss um að fjölpóstur berist frá þér er lang besta aðferðin að nota til þess gerða þjónustu, t.d. MailChimp:
MailChimp getur þú notað frítt upp að 12,000 póstum á mánuði til 2000 viðtakenda. Þetta er mjög örugg og áhyggjulaus leið til þess að senda fjöldapóst.
Annar möguleiki er t.d. SendGrid:
SendGrid er frítt upp að 12,000 póstum á mánuði, þar þarf ekki að skrá greiðslukort.
Ef farið er í að senda á 40.000 netföng á mánuði þá kostar það 10$ borið saman við 75$ hjá mailchimp.
Viljir þú endilega gera þetta sjálfur þá er ekkert vit í því að hafa fleiri en svona 6-8 viðtakendur í hverri sendingu. Við hvetjum þig þó til að skoða sérhæfða þjónustu til að senda fjölpóst, sérstaklega ef þetta er eitthvað sem þú þarft að reiða þig á í atvinnuskyni.
Sjálvirkt svar frá netfangi
→ Farðu á 1984.is, smelltu á Innskrá og veldu Stjórnborð.
→ Smelltu á Fara á stjórnborð hýsingar.
→ Smelltu á Mail efst uppi.
→ Finndu netfangið sem þú vilt virkja sjálvirkt svar fyrir.
→ Smelltu á Enable þar sem stendur Auto responder.
→ Skrifaðu skilaboðin þín í stóra gluggann og smelltu á Activate.
→ Þar sem áður stóð Enable stendur nú Disable sem þú smellir á til að af-virkja sjálfvirkt svar, eða Edit til þess að breyta skilaboðunum.
á ég að geta breytt þessu :o